26.10.2026
Höfum verið í auknu mæli síðastliðin ár að tileinka okkur réttingar með límréttingar verkfærum til að valda minni skaða á húð stáls og áls í bílum, þetta er þó ekki eina rétta leiðin en góð viðbót.. Fyrir skömmu fjárfestum við í nýjum búnaði til límréttinga frá Keco sem er eitthvað annað ! Alger bylting og nær allt mögulegt..
23.10.2026
Værum enn betur sett með liðsauka
29.07.2026
Verkefnin eru næg og rúmlega það.. Og erum við því til í að bæta við okkar frábæra teymi starfsmönnum sem vilja starfa við bílaviðgerðir, bílaréttingar og þjónusta viðskiptavini okkar vel..
09.07.2026
Almennar bílaviðgerðir hafa nú takmörk við okkar merki og það sem við höfum tekið að okkur að þjónusta, ætlun okkar með þessari breytingu er að kunnátta starfsmanna nýtist enn fremur í að sinna þessum vörumerkjum betur og markvissara en tími hefur gefist til, er það vilji okkar að þjónustan sé góð og því er þetta skref í þá átt.
16.04.2026
Vegna jarðarfarar verður CAR-X tjónaskoðun lokuð frá kl. 11 þann 16.04.2026