Á næstu dögum mun CAR-X í samstarfi við Parallel á Íslandi og Austurríska fyrirtækið Aviloo bjóða upp á test á High Voltage rafhlöðu bíla.
Við kaup á notuðum rafbíl eða hybrid bíl getur það skipt sköpum við kaup að vita að rafhlaða sé í því lagi sem upp er lagt með og því hagur bæði seljanda og kaupanda að greining fari fram fyrir eigandaskipti, einnig hafa margir leitað til okkar sem eru með svona bíla eigin notkun óskað eftir að vita stöðuna á rafhlöðu, finnst sumum að þeir dragi ekki eins langt og áður osfr.
